8. desember 2007

9. desember - jólafundur

Ágætu Rótarýfélagar

Við viljum minna á rótarýmessuna á sunnudag 9. desember kl. 11:00 í Garðakirkju og jólafundinn að Garðaholti strax eftir messu.
 
Jólafundurinn er í umsjón stjórnar og ferða- og skemmtinefndar,
en hann er jafnframt síðasti fundur á þessu ári og hefst jólafrí klúbbsins eftir hann.
 
Næsti reglulegi fundur er síðan mánudaginn 7. janúar á nýju ári í Skátaheimilinu að Bæjarbraut 7.
 
Ef einhverjir eiga eftir að skrá sig á jólafundinn, þá vinsamlegst hafið samband við Bjarna Jónasson bjarnijonas@simnet.is
Bestu kveðjur, 
Guðmundur Guðmundsson og
Ingibjörg Hauksdóttir

 


Til baka


yfirlit funda